Aðalvalmynd

Ég

  • Nafn: Númi Davíðsson
  • Staður: Reykjavík

Auglýsing

Deviant Artist!

26. júní 2009 klukkan 20:49
Ég uploadaði minni fyrstu mynd á deviantART í dag! Ég var bara að prófa skannann og skannaði eithvað krot sem ég átti, og ákvað að prófa að setja það á Deviant. Það eru 2 búnnir að favourita! Mig langar bara að setja meira! En ég á ekkert í augnablikinu. Ég fynn það að þetta mun verða einhvað sem ég mun gera reglulega. Semsagt að setja myndir þangað. Og ég mun reina að gera betur og betur. En hérna er linkur að myndinni. Bara einföld skissa sem ég gerði á einni mínótu eða einhvað, seint um kvöld áður en ég fór í rúmið. Næstu verk mín munu verða vandaðari og vonandi lituð. Kannski set ég líka ljósmyndir?


http://AeroNumi.deviantart.com/art/the-Kvist-127315318

Stórframkvæmdir.

09. júní 2009 klukkan 17:17
Hellú! Sorry hvað ég blogga seint, ég skildi tölfuna eftir hjá mömmu í þetta skiftið meðan ég var hjá pabba. Allt gott að frétta bara! Ísold kemur heim á laugardaginn og ég er bara búinn að vera að hjálpa Frímanni að gera allt tilbúið í bílskúrnum. Hann var að smíða vegg og ég ætla að mála hann bara um leið og ég er búinn að blogga. Þetta verður bara orðið kósí þegar Ísold kemur. Mér hefur alldrei hlakkað eins mikið til að fá hana heim! Það er líka frábært að hún er ekki að fara neitt aftur. Yay!

Sallt & Edik.

25. maí 2009 klukkan 18:28

Ég fór í klippingu um daginn! (næstum viku, sorry gleymdi að blogga) Nú lít ég aftur út eins og á litlu myndinni.        <=þessari. Gunndís kom aftur frá Englandi um daginn... veik. Ekki alveg jafn gott veður í Englandi og hér! Mo ho haha! Nei ok það ringdi tvisvar eða einhvað hjá henni. Hún kom með helling af snakki frá Englandi, en þar er nefnilega hægt að fá allt snakk með Sallti og ediki! Pringles og lays og einhvað. Það er soldið súrt en alveg gott. hún gaf mér poka af lays, eða "Walkers" eins og það heitir þarna! veit ekki ahverju. Hún gaf mér líka rosalega flottann FAT FACE bol!!! Og litla bók um dreka og einhvað. Gunndís er besst! 

Sumar & Sól!

16. maí 2009 klukkan 13:42
Þá er ég frjáls og kominn í sumarfrí! reyndar fyrir 5 dögum en ég hef bara ekki nennt að blogga fyrr. Ekki það að ég hafi einhvað betra að gera heldur er ekkert búið að gerast annað en að ég er kominn í sumarfrí! Ég er bara búinn að vera að hanga á Hveragerði að chilla enda er Gunndís í Englandi. En veðrið er búið að vera gott og er betra á hverjum degi og Hveragerði er mjög fallegur staður á sumrinn.

hérna er enn ein myndin af húsinu mínu. (síðasta ég lofa!) Fyrsta var svo grámygluleg og hin var, ótrúlegt en satt, fölsuð! Þessi sýnir heimilið mitt í réttu ljósi:


 

Próf!

06. maí 2009 klukkan 12:46
Jæjja, þá er komin vika síðan ég bloggaði seinast og kominn tími á nýtt blogg. Ég hef ekki frá miklu að segja núna. Ég er bara að læra fyrir próf þessa dagana. Ég er búinn í tvem prófum: ensku á mánudaginn og lista og menningarsögu áðann! Það hefur gengið mjög vel hingað til og ég verð tilbúinn í íslensku (morgun) og náttúrufræði (hin) en ég er soldið kvíðinn fyrir stærðfræði. Það próf er næsta mánudag svo ég hef alla helgina til að læra fyrir það en það er ekki alveg nóg. Ég er samt meira spenntur en kvíðinn því að það eru bara 5 dagar þangað til að ég er laus við allan lærdóm! Heimurinn verður bjartari með hverju prófinu sem líður. Svo er Gunndís reyndar að fara til Englands eina ferðina enn! (djók) En já ég teikna þá bara á meðan og reyni kannski að pína mig í sund. (En ég er ekki búinn að stunda neina hreifingu í vetur fyrir utan að ganga útí strætóskíli og til baka.) Ókei bæ! Þarf að læra!

Helvítis Jarðskjálftar!

29. apríl 2009 klukkan 19:28
"Hvernig er á Hveragerði?" Spurði kunningi minn mig í íslensku í dag. "Hræðilegt..." Svaraði ég, "Það er aldrei svefnfriður fyrir þessum helvítis jarðskjálftum!" Ég var nú aðalega að djóka en málið er að ég vaknaði við jarðskjálfta í nótt. 4,9 á rikter. Ég sofnaði síðan strax aftur og hefði ekki einussinni munað eftir því ef að maðurinn, sem  skuttlaði mér í mjóddina í morgun þegar hann sá mig missa af strætó í morgun, hefði ekki spurt mig hvort ég hefði fundið jarðskjálftann. Um leið og ég kom í Mjóddina hitti ég Gunndísi! Það er svo gott að fá að knúsa hana aðeins áður enn maður fer í skólann. 

Blendinn Dagur.

22. apríl 2009 klukkan 17:49
Hæ, Ég var að koma heim úr skólanum fyrir stuttu. Fyrri hluti dagsins var góður, skólinn átti afmæli og öllum var boðið uppá köku, svo er náttúrulega miðvikudagur og þá fær maður sér náttúrulega pizzu. en svo eftir hádeigi er ég í gati. ok. ekkert mál, en tíminn sem ég átti að vera í eftirá féll niður svo ég þurfti bara að hanga í tvo tíma til að mæta í ensku, en ég hafði gleymt bókinni og gat þessvegna ekkert gert! Grrrrrrrh.... En dagurinn er ekki búinn! ....LOL! Einmitt þegar ég kláraði síðustu setningu hringdi Þórun Greta í mig og sagði að hún kæmi seint heim og ætlaði að panta pizzu! Maður fær aldrei nóg af pizzu! En ég ætla að lesa hitt og þetta, teikna, hlusta á tónlist og slappa af þangað til.

Og talandi um ensku! þótt að ég hafi ekkert getað gert í dag þá hef ég eingar áhyggjur. Það var könnun í ensku um daginn og í gær þegar kennarinn skilaði okkur útkomunni sagði hann eins og hann á til að gera:"Meðaleinkuninn var 5,3, Hæsta var 8,3 en aðeins tveir fengu það, síðan 7,4 og þaðan alveg niður í 2!" Allir voða áhyggjufullir, Ég líka. svo fékk ég könnuninna: 8,3! En jæjja nóg af monti, Ég er bara í einhverju miklu stuði til að skrifa. Látum þetta nægja í bili!

Vor & Vesen!

17. apríl 2009 klukkan 14:26
Blhe! Próf! Slatti af prófum! Það eru tvær vikur í þau, vika af þeim og svo frelsi! en vorið er komið og veðrið er gott! Blómin Blómstra og stöff. Ég er frekar kvíðin yfir prófunum en svo spenntur að yfir því að sumarið sé að koma með sól og hlíu, Ævintírum og skólaleysi!

Myndin hér fyrir neðan er af húsinu mínu á Hveragerði, Eins og ég sagði þá var fyrri myndin frekar grámygluleg, turnarnir sáust ekki í þokunni og svona. og viti menn! kom ekki bara enn einn einhyrningurinn þegar ég smellti af!? Það er allt morandi í þeim á Hveragerði. Maður sér þá bíta gras milli gróðurhúsana.

Hveragerði.

01. apríl 2009 klukkan 21:29
Sæl! Aaaaaltof langt síðan ég bloggaði seinast! Ég var náttúrulega að flitja og svona og netið var bara að koma í gær. Annars er það aðalega vegna þess að ég er búinn að vera að læra og svo er ég líka latur. Það er allt gott að frétta af mér, En ég er semsagt fluttur til Hveragerði. Ég er ánægður með herbergið mitt sem er stærra en það gamla, íbúðinn er öll stærri og rosa flott en staðsetninginn er algert rusl. Hveragerði er fínn bær en ekki til að búa á. Allavega ekki fyrir mig. Það er geggt spes að búa í glænýu húsi undir fjalli svona langt frá bænum (en hei, mamma hefði alveg eins getað flutt til Ísafjarðar þannig að ég er þakklátur fyrir að hún fór ekki lengra). Hér eru náttúrulega hverir á kverju horni. Þegar maður kemur að bænum rýkur úr honum öllum. Soldið svalt, maður getur bara soðið sér egg í næsta hver, það var í 50 crazy things to do in Iceland og maður hefur að sjálfsögðu gert það. (Ég kíkti nefnilega í hana um dagin og ég hef gert bara lang flesta hlutina.) Hér fyrir neða er mynd af húsinu, hún er ekki mjög góð. Þokan gerir það frekar dautt. En eingar áhyggjur, það er miklu flottara að innann.

 

Númi the Pumpkin King!

09. mars 2009 klukkan 20:18
Gott kvöld, Að frétta er þetta helst: Helgin var ekkert sérstök og nóg að gera í skólanum. Ég klúðraði feitan á stærðfræðiprófi í dag, fæ kanski einn. Reyndar fór ég á Fanboys um helgina! Ég gat ekki beðið með að sjá hana svo ég ákvað að gera það ekki! Hún var tær snild! Alveg jafn góð og ég bjóst við. Ég var að tala við Ísold á skype áðann. Hún fer að fara að koma heim fyrir fullt og allt! Hún er að fara að gera sögu sem hún er búinn að vera að setja saman í hausnum síðan í sumar! Það verður líka spennandi að sjá. Tölvan mín er hjá pabba svo ég fékk mömmu tölfu lánaða og gettu hvað ég fann! Þessa sætu mynd hérna fyrir neðan frá halloween í fyrra! Málningin mín mætti vera flotari en ég gerði hana bara sjálfur. Ég var geggt að fíla mig svona, en ekki jafn mikið og Gunndísi! 

 
Og þú ert víst sæt á henni!